Allir eru ( í alvöru) að efla hjólreiðar nema við ...

Kíkið á þessa færslu á vef Fjallahjólaklúbbsins

Páll tók myndir í París 2002 og sýnir margar ágætar lausnir  fyrir hjólreiðamenn þar í borg.  Núna í  2007, með 15.000 leigureiðhjól á götunum  þykir vist að hjólreiðamenn hafa enn meira vægi í umferðinni þar.   Manni skilst að hjólreiðar á "einkareiðhjólum" hafa aukist  að sömu skapi og með leiguhjólunum,  hvatt  til dáða af þessum jákvæða áherslu á auknigu hjólreiða.

París var gestgjafi fyrir hjóla-ráðstefnunni Velo-City árið 2003, og hlýtur ráðstefnan að hafa verið ákveðin lyftistöng fyrir hjólreiðar.   Dæmin með Velib' hjólunum 20.000 og til dæmis TGV lestunum, sýna a Frakkar geta lyft grettistaki ! 

Takið eftir á myndunum frá París hvernig reiðhjól og strætó eru leyfðar / ætluð að samnýta forgangsakreinar.  Tillaga um breytingu á umferðarlögum hérlendis munu banna hjólreiðar á öllum forgangsakreinum.  Landssamtök hjólreiðamanna eru að vinna í að leiðrétta lagabreytinguna.  Það þarf að banna bíla að nota forgangsakreinar strætó, en ökutækin reiðhjól,  þurf að fá undanþágu, eins og í París,  London, Osló, og viðar.  Sums staðar hafa auk þess leigubílar og rafmagns- og metanbílar leyfi til að nota þær. 

LHM eru með  rökin með þessu og getum væntanlega svarið  helstu rökin sem verða etv beitt með að banna hjólreiðar á forgangsakreinum.  Nú er mál að ráðamenn hlusta og ræða málin. 

(Morten) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband